Einfaldlega besti bita-harðfiskur sem til er..

Árið 1952 stofnuðu Egill Karlsson og Lúðvík Ingvarsson hlutafélagið Sporð.  Upphafið má þó rekja til áranna 1947-1948 en þá hóf þáverandi sýslumaður Suður-Múlasýslu, Lúðvík Ingvarsson, tilraunir til verkunar á harðfiski.  Þar byggði hann á eigin reynslu og annarra, að fiskur sem frystur er við vægt frost er “sætari og bragðmeiri” en ferskur fiskur eða hraðfrystur.  Hlutafélagið keypti gamalt  sláturhús, breytti því í frystihús, sem enn er notað til flökunar og frystingar.  Einnig var keyptur gamall herbraggi sem var notaður við þurrkunina, bragginn er enn í notkun.  Veturinn  1951 – 1952  var allur búnaður settur upp til frystingar og þurrkunar og rekstur hófst síðan árið 1952.  Óhætt er að segja að varan, sem gekk undir nafninu “Sætfiskur” hafi slegið í gegn, enda heilnæm og holl náttúruafurð sem eingöngu er framleidd úr fersku úrvalshráefni án notkunar aukaefna. Allt ferli vinnslunnar er handavinna og nostur sem líkja má við framleiðsluaðferðir dýrustu vína. Vinnsluaðferð á harðfiskinum hefur lítið breyst í áranna rás.  Fyrirtækið hefur frá upphafi verið rekið af sömu fjölskyldu á Eskifirði. Harðfiskurinn er seldur víða um Ísland m.a. í verslun Islandica í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Heimasíða Sporðs er hér