Kassabílarallý í boði Tanna Travel verður haldinn þann 21. ágúst 

Keppnin byrjar kl 12:00 fyrir ofan Eskju túnið 

Keppendur geta skráð sig hér í gegn eða á staðnum.
Mæting keppanda er 11:30

4 flokkar eru í keppninni og eru þeir 4-7 ára, 8-11 ára, 12-15 ára og 16 ára +

Vegleg verðlaun í boði fyrir hvern flokk og svo fyrir flottasta/frumlegasta bílinn

Verðlaun fyrir sigurvegara í hverjum flokki Nexus Ares 8″ spjaldtölva og inneign í Nexus fyrir 2.500kr

Verðlaun fyrir Flottasta og Frumlegasta kassabílinn er JBL Flip3 Bluetooth hátalari og 5.000,- inneign í Nexus

Tvo þarf til að byrja keppnina og sá sem ýtir fer með hann í gegnum þrautir á Túngötunni og þegar komið er fyrir hornið á rauðu línuna er bílnum ýtt niður Útkaupstaðarbraut þar sem hann fer einn niður.
Ath. að sá sem ýtir má ekki vera eldri en sá sem er í bílnum, því það gildir sá sem er eldri með í hvaða aldursflokk viðkomandi lendir.

Skráning í Kassabílarallý

  • Eitthvað sem þú vilt taka fram eða spyrja um?

Sunnudaginn 21. ágúst verður haldið Kassabílarallý við Eskju túnið.

 

Reglur um bílana:

  • Bíllinn skal hafa að lágmarki 4 hjól
  • Ökumaður sem situr í bíl skal stýra bílnum
  • Bíllinn má ekki verið knúinn með nokkurs konar mótor
  • Bremsur skulu vera á bílnum. Ýmsir útfærslur leyfðar.
  • Á bílnum skulu vera 2 sléttir fletir að stærð 30cm x 30cm sem keppnisstjórn má ráðstafa að vild.  (1 flötur á hvorri hlið eða fram og aftur)
  • Hlífar skulu vera yfir dekkjum þannig að föt, hár o.s.frv geti ekki flækst í þeim
  • Beygjubúnaður skal vera þannig útfærður að ekki hljótist skaði af fyrir ökumann ef bíllinn keyrir á.  Til dæmis þannig að stopp sé á hversu langt hjólabúnaður getur beygt
  • Í bílnum skal vera að lágmarki 2punkta belti
  • Í bílnum skal vera sæti þannig að ökumaður geti ekki runnið úr bílnum við snögga beygju
  • Fætur skulu staðsettar í bílnum þar sem þær geti ekki skaðast
  • Hámarks lengd á bíl skal vera 160cm
  • Hámarks breidd á bíl skal vera 90cm
  • Afturdekk skulu ekki ná afturfyrir ýtislá
  • Allir ökumenn skulu ávallt vera með hjálm og ýtarar skulu vera með hné og olnbogahlífar
  • Klæðnaður skal vera þannig útbúinn að ekki sé hætta á slysum af völdum hans
  • Ekki skulu vera hvassar brúnir á bílnum sem hægt er að meiða sig á.

Nánari upplýsingar inn á kassabilarally.is

1) Dagskrá skal vera gefin út að lágmarki 2 vikum fyrir keppni og þar skal koma fram hvar keppnisstaður er,
hvar og hvernig menn skrá sig, Hvar er hægt að nálgast reglur, tímaáætlun keppninnar

2) Skráning skal fara fram að lágmarki viku fyrir keppni

3) Öryggisskoðun skal fara fram fyrir keppni og skal tekið fram í tímaáætlun keppninnar hvar og hvenær

4) 4 flokkar eru í keppninni og þeir eru 4-7 ára, 8-11 ára, 12-15 ára og 16 ára +   (aldur fer eftir elsta ökumanni / ýtara) Verðlaun eru veitt í öllum flokkum.  Einnig verða veitt verðlaun fyrir flottasta bílinn. Í heildarflokknum má blanda saman hvaða aldri sem er. (t.d. má fullorðinn ýta barni sínu) en ef menn keppa í heildarflokknum og uppfylla ekki skilyrði fyrir undirflokkum þá geta þeir ekki keppt þar líka.

5) Í einu liði skal vera hámark 3 keppendur á aldri miðað við flokk og einn liðstjóri sem þarf að hafa náð 18 ára aldri. Keppendur ráða hver keyrir og ýtir hverju sinni en að lágmarki skulu vera 2 inná brautinni í einu.

7) Allir keppendur undir 18 ára aldri þurfa að skila inn leyfi frá forráðamönnum til að fá að keppa.

8) Ekki meiga vera auglýsingar á bílunum sem stríðir gegn almennu velsæmi eða lögum í landinu
(t.d. áfengis eða vímuefnaauglýsingar)

9) Allir keppendur skulu sýna drengilega keppni og getur dómari gefið refsingu fyrir ódrengilega keppni

10) Keppnin verður keyrð eins og venjuleg rallykeppni þar sem viðkomandi áhöfn skal koma inn á réttum tíma.
Við upphaf keppni fær viðkomandi lið tímabók.

11) Ef þú tínir tímabókinni þá ertu dottin úr keppni.

12) Refsing fyrir að koma of snemma inná tímavarðstöð er 20sec fyrir hverja byrjaða mínútu en 10sec
fyrir hverja byrjaða mínútu fyrir að koma of seint inn. Á 15. mínútu er liðið dottið úr keppni

13) Keppni hefst við öryggisskoðun og skulu keppendur vera komnar á réttum tíma miðað við tímaáætlun
eða að öðrum kosti að fá refsingu eins og hér að ofan.

14) Leyfilegt er að koma of snemma inní öryggisskoðun.

15) Í tímabók skulu keppendur reikna út tímann sinn og hvenær þeir eiga að koma inná næstu leið.
Liðstjóri má aðstoða við þessa útreikninga.

16) Fari keppendur útaf leið þá skulu þeir fara á sama stað aftur inná.

17) Dómarinn ræður. Hann getur ákvarðað refsingu ef hún er ekki tilgreind í reglum þessum

18) Hægt er að áfrýja úrskurði dómnefndar til keppnisstjórnar

19) Keppnisstjórn getur ákveðið hvort ræst verði með 30sec millibili eða 1min millibili.
Ef svo ólíklega vildi til að lið nær öðru liði inná sérleið þá skal
passa uppá öryggi keppenda við framúrtöku.

20) Aðeins er leyfilegt að gera við bíla á tilgreindum viðgerðarsvæðum.

21) Inná sérleið mega keppendur ekki fá utanaðkomandi hjálp nema með leyfi dómara.

22) Verðlaun: veitt verða verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin í hverjum flokk.

23) Einnig verða veitt verðlaun fyrir flottasta bílinn.

24) Til að flokkur teljist gildur þarf að lágmarki 3 bíla.
Ef ekki næst í flokk þá keppa viðkomandi í heildarflokknum.

25) Hámarks fjöldi bíla í þessari keppni er 100. Ef fleiri en það sækja um þá getur keppnisstjórn farið fram á að haldin verði forkeppni eða að farið verði eftir fyrirkomulaginu fyrstur skráir sig fyrstur kemst inn.

26) Keppninni verður skipt upp í riðla, cirka 20 bílar verða í hverjum riðli.  Í hverjum riðli verða eknar þrjár brautir.  Fimm efstur í hverjum riðli komast í úrslit.  Í úrslitum verða aftur eknar þrjár brautir.